Hér höfum við alveg dásamlega góðar sítrónu og bláberja pönnukökur sem eru einstaklega djúsí.
Þær eru afar þykkar, djúsí og flöffí og minna mig mikið á klassísku amerísku pönnukökurnar sem er ein vinsælasta uppskrift síðunnar og myndi gróflega áætla að þið flest sem lesið síðuna, séuð búin að prófa.
Þessar sítrónu og bláberja pönnukökur eru örlítið hollari en venjulegar pönnukökur þar sem ég notaði í þær spelt, 50% fínt og 50% gróft, og hrásykur í staðin fyrir venjulegan. Með því að skipta yfir í spelt og hrásykur fær maður svo gott sem sama bragð og áferð og ef notað er venjulegt hveiti og sykur, en örlítið meira af vítamínum. En ef þú átt hvorki spelt né hrásykur þá er engin ástæða til að hlaupa út í búð, þú notar þá bara venjulegt hveiti og sykur.
Ab-mjólkin er hins vegar lykil hráefnið í þessari uppskrift. Það eru kannski ekki allir sem vita það að með því að nota ab-mjólkina frá Örnu í baksturinn þá verður baksturinn rakameiri, eða meira djúsí eins og ég kalla það yfirleitt.
Ég mæli með að prófa þessar pönnukökur í næsta brunch!
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
350 g spelt (skipta 50/50 gróft og fínt)
3 msk hrásykur
Börkur af 1 sítrónu
Safi úr ½ sítrónu
2 tsk matarsódi
3 msk chia fræ
500 ml Ab-mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
2 egg
70 g brætt smjör
2 tsk vanilludropar
250 g bláber
456-5600
arna@arna.is
VSK Númer. 85774
Framleiðsla og aðalskrifstofur
Hafnargötu 80, 415 Bolungarvík
Sala og dreifing
Tunguhálsi 6, 110 Reykjavík
Póstlisti
Með því að skrá þig á póstlistann okkar færðu sendar
nýjustu uppskriftir og aðrar gagnlegar tilkynningar frá Örnu.