Rúllið út pizzadeiginu, skerið það þannig það verði að löngum þríhyrning. Setjið afrenningana á annan smjörpappír og raðið saman svo myndist annar eins þríhyrningur, klemmið hann saman í miðjunni.
Setjið hvítlauksolíu á botninn, dreifið rifna ostinum yfir allt. Skerið piparostinn í litla bita og dreifið yfir. Setjið rjómaost hér og þar yfir deigið og rífið svo parmesan ostinn yfir.
Takið heila þríhyrninginn og leggið yfir deigið með ostunum, klemmið saman með fram hliðunum. Skerið 3 cm renninga þvert í þríhyrninginn en skiljið þó miðjuna eftir heila. Snúið upp á renningana eins og á myndinni.
Bakið inn í ofni þar til orðið gulliðbrúnt, setjið hvítlauksolíu yfir þegar hún er komin út úr ofninun og rífið jafnvel smá parmesan ost yfir ef þið viljið.