Litríkt og bragðgott risarækju hrásalat með mexíkósku ívafi

Litríkt og bragðgott risarækju hrásalat með mexíkósku ívafi sem tekur enga stund að úttbúa.

Ég elska fljótlegan, bragðgóðan og hollan kvöldmat. Þetta ljúffenga salat tekur aðeins 15 mín að útbúa og það er stútfullt af allskonar litríkri hollustu sem gerir líkamanum okkar gott á meðan það leikur við bragðlaukana okkar.

Það góða við svona hrásalat er hvað það geymist vel. Það er því upplagt að gera stóran skammt af því og geyma afgangana af því í vel lokuðu íláti fyrir næstu daga.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

Risarækju hrásalat með mexíkósku ívafi:

1/4 rauðkálshaus

1/4 hvítkálshaus

4 gulrætur

10-20 g ferskt kóríander

200 grifinn mozzarella frá Örnu Mjólkurvörum

400 g gular maís baunir

niðursoðnar jalapenó sneiðar (má sleppa)

500 g risarækjur

1-2 msk mexíkósk kryddblanda

 

Salat dressing með mexíkósú ívafi

1 dl mæjónes

1 dl grískt jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum

1 hvítllauksrif

1 tsk mexíkósk kryddblanda

1/8 tsk chillí krydd

Salt og pipar

Safi úr 1/2 lime

Aðferð

  1. Skerið rauðkálið, hvítkálið og gulræturnar smátt niður. Setjið í stóra skál, bætið gulu baununum í skálina ásamt söxuðu kóríander (gott að skilja smá eftir af kóríanderinum til að skreyta með), rifnum mozzarella, söxuðu jalapenó.
  2. Útbúið dressinguna með því að setja mæjónes og gríska jógúrt í skál. Rífið hvítlauksrifið ofan í skálina og bætið kryddunum út í. Kreystið limesafa út í og hrærið öllu saman.
  3. Hjúpið risarækjurnar með kryddið og steikið þær á pönnu upp úr örlítilli olíu þar til þær eru orðnar bleikar í gegn.
  4. Setjið drressinguna út á salatið og blandið öllu mjög vel saman. Setjið salatið á fallegan disk. Setjið risarækjurnar yfir og skreytið með meira kóríander.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook