Það þekkja margir þennan drykk úr amerískum bíómyndum en eggnog er órjúfanleg hefð margra í Ameríku.
Eggnog er rjómakendur drykkur og er algjört lostæti. Hægt er að gera bæði áfengislausa og áfenga útgáfu af drykknum en eini munurinn til að gera áfenga útgáfu er að blanda áfengi saman við í endann áður en honum hellt í glösin. Rammleikinn í áfenginu vegar skemmtilega á móti sætunni í drykknum.
Byrjið á því að setja eggjarauður og sykur í hrærivél og þeytið þar til alveg ljósgult (nánast hvítt) og mjög loftmikið.
Setjið rjómann, mjólkina, múskat, kanil og salt í pott og hitið að suðu (slökkvið þegar blandan byrjar að sjóða).
Hellið helmingnum af rjómablöndunni ofan í eggjablönduna hægt og rólega í mjórri bunu með hrærivélina í gangi.
Hellið núna úr hrærivél og setjið ofan í pottinn með restinni af rjómablöndunni. Hitið og hrærið stanslaust í á meðan, slökkvið undir þegar blandan er byrjuð að þykkna, setjið vanilludropana út í og blandið saman við.
Hellið drykknum í ílát sem þolir hita, lokið og setjið inn í ísskáp þar til blandan er alveg köld.
Skiptið drykknum á milli 4 glasa, skreytið með kanilstöng og muldum kanil.
Í áfengri útgáfu þá blandar þú áfenginu út í og hrærir áður en drykknum er skipt á glösin.