Haustjógúrtin er komin í verslanir

Nú er haustið á næsta leiti og berjailmurinn orðinn ríkjandi í vinnslusalnum hjá okkur hérna í Bolungarvík. Við höfum hafið framleiðslu á haustjógúrtinni okkar með íslenskum aðalbláberjum 🥰

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að haustjógúrtin verður nú aftur fáanleg í fallegri glerkrukku og nú með nýju og endurbættu útliti 💜

Haustboðinn ljúfi verður fáanlegur í verslunum um land allt á meðan berjabirgðir endast ! 🫐