Arna fremst í flokki framleiðslufyrirtækja í Maskínu 2024

Arna var valin fremst í flokki framleiðslufyrirtækja í Meðmælingu Maskónu árið 2024. Við erum virkilega þakklát og lukkuleg með þessa viðurkenningu og þökkum kærlega fyrir okkur.

Tilgangur Meðmælingarinnar er að vekja athygli á og hampa þeim fyrirtækjum sem veita almenningi frábæra þjónustu.

Á meðfylgjandi mynd eru þeir Ólafur Þór Gylfason frá Maskínu og Óskar Örn Hálfdánarson frá Örnu.