Ómótstæðileg ostapizza sem þú átt eftir að elska!
Hér höfum við uppskrift af pizzu sem ég smelli í nánast hverja einustu helgi! Afhverju er hún að koma fyrst inn á síðuna núna, spyrjið þið mögulega? Það er góð spurning sem ég eiginlega hef ekki svarið við 😆 Það er nánast orðið eins og að drekka vatn fyrir mér að smella í þessa pizzu og er hún löngu orðin fræg hjá fjölskyldu og vinum sem fá reglulega boð í pizzaveislur til okkar um helgar.
Það var ekki fyrr en vinkona mín sendi mér skilaboð um daginn og bað um uppskriftina, að ég fattaði að hún væri ekki á síðunni. Fram að því hvarflaði ekki að mér að þessi uppskrift, sem er orðin eins og hluti af mér, væri ekki á síðunni.
Svo hér er hún komin loksins, ómótstæðilega ostapizzan , gjöriði svo vel!
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Pizzadeig (þessi uppskrift er mjög góð, ég elska líka að kaupa súrdeigs pizzadeig sem fæst í mörgum bakaríum)
Hvítlauksolía
Rifinn mozzarella frá Örnu Mjólkurvörum
Hvítlauks kryddostur frá Örnu Mjólkurvörum
Brie
Bláberja eða rifsberjasulta (bæði mjög gott, veldu það sem þú ert í stuði fyrir eða átt til heima)
456-5600
arna@arna.is
VSK Númer. 85774
Framleiðsla og aðalskrifstofur
Hafnargötu 80, 415 Bolungarvík
Sala og dreifing
Tunguhálsi 6, 110 Reykjavík
Póstlisti
Með því að skrá þig á póstlistann okkar færðu sendar
nýjustu uppskriftir og aðrar gagnlegar tilkynningar frá Örnu.